Vörumerki fyrir önnur vörumerki
Fang er nýtt vörumerki sem framleiðir hágæða gæludýrafóður unnið úr íslenskum fiski. Fyrirtækið er svokallaður „white label” framleiðandi, sem þýðir að Fang er vörumerki sem framleiðir gæludýrafóður fyrir önnur vörumerki.


mörkun
grafísk hönnun
vefhönnun
hugmyndavinna
framleiðsla
Sníða þurfti vörumerkið að sérhæfðum markaði fyrir afar sérhæfðan markhóp. Í vinnunni var leitast við að besta vörumerkið fyrir sýningar og fyrirtæki sem selja gæludýrafóður í eigin nafni. Áhersla var lögð á einfaldleika, traust og sjálfbærni.


Aðallitur Fang er fallegur dökkblár, sem vekur hughrif um traust og hafið. Græni liturinn nýtist vel sem orkuríkur aukalitur í mismunandi mynstur eða grafíska viðbót, t.d. hreyfigrafík, bakgrunnsmyndir og viðbót við kynningarefni.
Form myndmerkisins minnir bæði á bókstafinn F og höfuð á fisk. Ef vel er að gáð má einnig greina tvær vígtennur í myndmerkinu auk lítils önguls í bókstafnum G.


Markmiðið var að finna nafn sem væri stutt, einfalt og hefði einhvers konar tengingu við Ísland. Að lokum varð nafnið Fang fyrir valinu. Orðið fang, sem á íslensku vísar í góðan feng eða afla, er bæði stutt og einfalt í alþjóðlegu umhverfi. Á ensku merkir orðið „vígtennur” sem á einnig vel við helstu notendur vörunnar, hunda og ketti.




